Samtök innviðaverktaka hafa það hlutverk að stuðla að bættu starfsumhverfi innviðaverktaka.
Samtökin innviðaverktaka voru stofnuð árið 1953 og hétu til ársins 2024 Félag vinnuvélaeigenda. Samtökin hafa átt aðild að Samtökum iðnaðarins frá stofnun þeirra árið 1993.
Hlutverk Samtaka innviðaverktaka er að stuðla að bættu starfsumhverfi innviðaverktaka, vera sterkur málsvari félagsmanna, upphefja ímynd greinarinnar og tryggja öflugt alþjóðlegt samstarf við systursamtök.
Samtökin hafa það að leiðarljósi að gott starfsumhverfi innviðaverktaka geri þeim kleift að mæta þarfri innviðauppbyggingu á heilbrigðum útboðs- og verktakamarkaði.
Vefsíða samtakanna: samtokinnvidaverktaka.is
Tengiliður hjá SI: Katrín Pétursdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, katrin@si.is.
Flakkarinn ehf
Ágúst Vilberg Jóhannsson
Brjánslæk, Patreksfirði
Grafa og Grjót - INVIT ehf.
Guðgeir Freyr Sigurjónsson
Hringhellu 7, Hafnarfirði
LNS Íslandi ehf.
Ásgeir Loftsson
Suðurhrauni 10, Garðabæ
