MBS er félag iðnmeistara á Suðurnesjum. Félagsmenn koma úr öllum greinum byggingariðnaðarins.
Meistarafélag byggingamanna á Suðurnesjum var stofnað 3. desember árið 1971. Félagið gekk til liðs við Samtök iðnaðarins árið 2013. Með tilkomu MBS starfa nú nær öll samtök atvinnurekenda í byggingariðnaði sameinuð undir merkjum Samtaka iðnaðarins.
Vefsíða MBS: www.mb.is
Tengiliður hjá SI: Kristján Daníel Sigurbergsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, kristjan@si.is.
