Innviðir - grundvöllur fjárfestinga

Samtök iðnaðarins beita sér fyrir umbótum í innviðum landsins þar sem stefnt er að því að innviðir séu í góðu ástandi og uppfylli þarfir atvinnulífs og almennings.

Innviðir - grundvöllur fjárfestinga

Framtíðarsýn

Framtíðarsýn Samtaka iðnaðarins felst í því að innviðir á Íslandi séu samkeppnishæfir á við það sem best gerist í samkeppnislöndum. Það er óhugsandi að ímynda sér íslenskt samfélag án innviða á borð við samgöngur, veitur, orkuvinnslu og húsnæði. Saman mynda þessir innviðir lífæðar samfélagsins. Hagkvæmir, skilvirkir og áreiðanlegir innviðir sem þjóna þörfum atvinnulífs og heimila skila sér í aukinni samkeppnishæfni þjóðarbúsins, aukinni velmegun og betri lífsgæðum fyrir íbúa. Með fjárfestingum í innviðum eru byggðar stoðir fyrir hagvöxt framtíðarinnar.​

SI beita sér fyrir hagkvæmum og skilvirkum innviðum​.