Byggt bæði of hratt og of hægt

Rætt er við Jón Sigurðsson, formann Meistarafélags húsasmiða, í Bítinu á Bylgjunni um stöðuna á byggingamarkaði.

Jón Sig

Jón Sigurðsson, formaður Meistarafélags húsasmiða, segir stöðuna á byggingamarkaði erfiða í viðtali í Bítinu á Bylgjunni. Hann segir að nú sé bæði byggt of hratt og of hægt. Fluttar séu inn tilbúnar byggingar sem þurfi að loka mun hraðar en gert sé svo að vatn komist ekki inn. „Ef það kemst vatn þá kemst raki og mygla,“ segir Jón. Hótelturninn við Skúlagötu og Kársnesskóla í Kópavogi eru nefnd sem dæmi. Á sama tíma sé byggt of hratt, því efnin fái ekki að þorna almennilega og aðlagast.

Að mati Jóns hefur þekking tapast meðal iðnaðarmanna eftir að nám þeirra var stytt. Hátt vaxtastig og dýrar lóðir ýti undir að byggt sé hratt. Hann telur að byggingariðnaðurinn snúist orðið meira um að græða en að byggja vel.

Jón sér ekki fram á að efnahagsstaðan batni. „Það þýðir ekki að keyra niður íbúðamarkaðinn til þess að ná niður verðbólgu, það er glatað,“ segir hann.

Hann segir einnig að til standi að breyta fyrirkomulagi úttekta á byggingum og að það gæti orðið til bóta.

Hlusta má á viðtalið í heild sinni á Vísi.

Vísir, 19. nóvember 2026.