Rafmennt sem er í eigu Samtaka rafverktaka og Rafiðnaðarsambands Íslands afhenti fyrir skömmu spjaldtölvur til nemenda í grunndeild rafiðnaðar við Tækniskólann í Reykjavík og Hafnafirði. Þetta er þriðja árið þar sem öllum nemum á landsvísu sem hefja nám í rafiðngreinum eru gefnar spjaldtölvur en að auki fá nemarnir aðgang að rafbok.is sem er vefur þar sem allt fagtengt námsefni er í boði án endurgjalds. Frá því að verkefnið hófst hafa verið afhentar á þriðja þúsund spjaldtölvur á landinu öllu en auk nema í rafiðnaði er kennurum við rafiðnaðardeildir viðkomandi skóla einnig gefnar spjaldtölvur.
Nemendur í rafiðn fá spjaldtölvur
Nemendur í rafiðn fá spjaldtölvur
Nemendur í rafiðn hafa fengið afhentar spjaldtölvur.


Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART og viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, tók þátt í afhendingu spjaldtölvanna. 
Íslensk menntatækni kynnt á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna
Samtök menntatæknifyrirtækja kynntu íslenskar menntatæknilausnir fyrir sveitarstjórnarfólki.

Nýsveinar á Akureyri fá afhent sveinsbréf
Nýsveinar fengu sveinsbréf sín afhent við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.

Tuttugu nýsveinar í hársnyrtiiðn fá sveinsbréf
