Á sama tíma eru þeir í samkeppni við einkamarkaðinn um sérhæft starfsfólk. Það er heldur ekki nógu gott því innkaupastofnun ríkisins á að okkar mati frekar að ýta undir verðmætasköpun í atvinnulífinu en ekki veikja hana. Þetta segir Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri tækni- og hugverkaiðnaðar hjá SI, í frétt RÚV um útboð ríkisins sem nefnt er Stafræn heilsa og er ætlað að ná fram hagræðingu í heilbrigðiskerfinu.
Erla Tinna segir um færslu starfsmanns Stafrænnar heilsu á samfélagsmiðlum þar sem forritarar eru hvattir til að taka þátt í útboðinu að ummælin séu óheppileg. „Heilbrigðiskerfið okkar er einn af okkar mikilvægustu innviðum og þar fara um okkar mikilvægustu og viðkvæmustu gögn. Utan um þessi gögn er hugbúnaður og hann skiptir sköpum fyrir öryggi sjúklinga og skilvirkni kerfisins og þess vegna finnst okkur umræðan síðustu daga kannski ekki endurspegla hvað í raun og veru er í húfi.“ Hún segir Samtök iðnaðarins styðja það þegar fleirum sé hleypt að opinberum verkefnum bæði smærri fyrirtækjum og sprotafyrirtækjum en það skipti máli hvernig ríkið kaupi lausnir og þjónustu. „Með tilkomu gervigreindar þá eru aðilar sem geta forritað mun hraðar en ella og það er bara gott og blessað en í heilbrigðisþjónustu þá snýr þetta ekki bara að kóðanum sjálfum heldur ýmsum öryggissjónarmiðum, prófunum, viðhaldi, ábyrgð innleiðingar og annað slíkt þannig að það er bara mjög mikilvægt að það sé vandað til verka.“
Á vef RÚV er hægt að horfa á fréttina í heild sinni.
RÚV, 20. nóvember 2026.




