Eflum samvinnu félagsmanna, viðhöldum öflugri endurmenntun og stuðlum að framförum
Hársnyrting er löggilt iðngrein. Á hársnyrtistofum er veitt fagleg þjónusta meistara í hárgreiðslu og hárskurði ásamt ráðgjöf við val á þvotta-, litunar- og næringarefnum og meðferð hársins eftir þörfum hvers og eins.
Félag hársnyrtimeistara á Norðurlandi er fagfélag hárgreiðslu- og hárskerameistara. Tilgangur félagsins er að efla samvinnu félagsmanna, eiga gott samstarf við hliðstæð samtök erlendis, viðhalda öflugri endurmenntun fagfólks í greininni og stuðla að framförum með upplýsinga- og fræðslustarfsemi, sýningum og keppnum.
Tengiliður hjá SI: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, viðskiptastjóri hjá SI, hulda@si.is.
