Beint í efni

Stefna SI, hlutverk, sýn og gildi

Stefna SI fjallar um áherslur í störfum samtakanna. Stefnumálin miða að því að efla samkeppnishæfni íslensks iðnaðar út frá þeim meginmálaflokkum sem mestu varða um framleiðniþróun og velmegun til framtíðar. 

Stefna SI 2026-2028

Samtök iðnaðarins efla samkeppnishæfni íslensks iðnaðar í þágu samfélagsins alls

Stjórn SI hefur samþykkt stefnu sem gildir 2026-2029. Hlutverk Samtaka iðnaðarins er að efla íslenskan iðnað í þágu samfélagsins alls. Gildi samtakanna eru fagmennska, samvinna og áræðni. Ísland í fremstu röð er sýn samtakanna og er kjarninn í stefnunni að vinna stöðugt að því að styrkja samkeppnishæfni Íslands með skýrri áætlun á sviðum starfsumhverfis, mannauðs, nýsköpunar, gervigreindar, orku og umhverfis, innviða, viðnámsþróttar og alþjóðlegrar hagsmunagæslu. Til þess hafa verið settar fram fjórar stefnuáherslur undir heitunum Ísland og umheimurinn, Sterkari saman og Markviss samskipti.

Ísland og umheimurinn

Verkefnin sem unnið verður að samkvæmt stefnunni undir yfirskriftinni Ísland og umheimurinn verður að styrkja alþjóðleg tengsl samtakanna og hagsmunagæslu í síbreytilegum heimi.

Sterk saman

Verkefnin sem unnið verður að samkvæmt stefnunni undir yfirskriftinni Sterk saman verður að efla þjónustu gagnvart félagsmönnum, afla nýrra félagsmanna og styrkja innri umbætur.

Markviss samskipti

Verkefnin sem unnið verður að samkvæmt stefnunni undir yfirskriftinni Markviss samskipti verður að styrkja upplýsingamiðlun og styrkja ímynd iðnaðar.