Tilgangur félagsins er að efla samstöðu og gæta hagsmuna félagsmanna sem og að vera málsvari iðnaðarins gagnvart almenningi, öðrum hagsmunasamtökum og hinu opinbera. Þá leggur félagið áherslu á að stuðlað sé að vandaðri framleiðslu og framförum í greininni og menntamálum
Rétt til aðildar að Félagi húsgagn- og innréttingaframleiðenda eiga þau skrásett fyrirtæki sem starfa í húsgagna- og innréttingaiðnaði og meistarar, sem reka sjálfstætt húsgagna- og eða innréttingaverkstæði. Að auki halda rétti sínum þeir meistarar, sem voru félagsmenn fyrir nafnbreytingu félagsins og ekki fullnægja ofangreindum skilyrðum.
Félagið er málsvari félagsmanna gagnvart almenningi, öðrum hagsmunasamtökum og hinu opinbera. Þau hafa það meðal annars að markmiði að efla samstöði innan stéttarinnar og gæta hagsmuna húsgagna- og innréttingafyrirtækja í því er iðngreinina varðar.
Vefsíða FHIF: https://fhif.is/
Tengiliður hjá SI: Þorgils Helgason, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, thorgils@si.is.
