Fjölmennt var á Útboðsþingi SI 2024 sem fór fram í Háteig á Grand Hótel Reykjavík í dag þar sem um 160 manns mættu. Á þinginu sem er haldið í samstarfi við Félag vinnuvélaeigenda og Mannvirki - félag verktaka voru kynnt fyrirhuguð útboð ársins 2024 á verklegum framkvæmdum tíu opinberra aðila sem nema 204 milljörðum króna.
Fundarstjóri var Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.
Dagskrá
- Ávarp - Árni Sigurjónsson, formaður SI
- Ávarp - Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
- Samantekt - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir - Óskar Jósefsson, forstjóri
- Vegagerðin - Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs
- Reykjavíkurborg - Einar Þorsteinsson, borgarstjóri
- Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
- Landsvirkjun - Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda
- Landsnet - Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður verkefnastjórnunar framkvæmda
- Rarik - Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar og framtíðar
- Veitur - Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra
- Nýr Landspítali - Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri
- Isavia - Páll Svavar Pálsson, forstöðumaður flugvallarþróunar og uppbyggingar
Glærur þingsins
Hér er hægt að nálgast glærur þingsins.
Greining SI með samantekt af fyrirhuguðum útboðum ársins
Hér er hægt að nálgast greiningu SI.
Góðar útboðsvenjur
Á þinginu var dreift tillögum að góðum útboðsvenjum. Hér er hægt að nálgast þær.
Ávarp formanns SI
Hér er hægt að nálgast ávarp formanns SI sem setti þingið.
Myndir
Á Facebook SI er hægt að nálgast fleiri myndir frá þinginu.
Myndir/BIG
Umfjöllun
Vísir/Stöð2, 30. janúar 2024.
RÚV kvöldfréttir, 30. janúar 2024.
RÚV vefur, 30. janúar 2024.
Viðskiptablaðið, 30. janúar 2024.
mbl.is, 31. janúar 2024.
Greinar
Góðar útboðsvenjur geta lækkað kostnað, Vísir 30. janúar 2024.
Auglýsingar





















