Samstarfsvettvangur allra starfandi ljósmyndara á Íslandi
Ljósmyndun er löggilt iðngrein. Starfsvettvangur ljósmyndara er fjölbreyttur og á mörgum sviðum sérhæfður. Á ljósmyndastofum eru teknar hefðbundnar portrett myndir, barna- og fjölskyldumyndir, passamyndir o.fl. Myndir dagblaða og tímarita eru teknar af fagljósmyndurum á því sviði og auglýsinga- og iðnaðarljósmyndarar sérhæfa sig í framleiðslu hágæða myndefnis til notkunar m.a. á umbúðir, í auglýsingar og kynningarefni eða til annarra nota fyrir stofnanir og fyrirtæki landsins.
Ljósmyndarafélag Íslands er fagfélag greinarinnar og samstarfsvettvangur allra fagmenntaðra ljósmyndara í landinu. Markmið félagsins er að efla samvinnu félagsmanna, stuðla að símenntun í greininni og tryggja árangur þeirra á markaði.
Vefsíða félagsins: www.ljosmyndarafelag.is
Tengiliður hjá SI: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, viðskiptastjóri hjá SI, hulda@si.is.
Fyrirtæki í samtökunum
Rán Bjargar slf.
Rán P. Bjargardóttir
Skipholti 60, Reykjavík
Sara Andrea Ólafsdóttir
Naustabryggju 12, Reykjavík
SOS Myndir slf.
Sigurður Ólafur Sigurðsson
Hlégerði 13, Kópavogi
