Meistarafélag byggingamanna á Norðurlandi er félag meistara og fyrirtækja í löggiltum byggingargreinum á Norðurlandi. Félagsmenn eru aðallega í byggingariðnaði.
Markmið félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og stuðla að faglegum vinnubrögðum í greininni. Félagið vinnur meðal annars að aukinni menntun, verkkunnáttu og vandvirkni í byggingariðnaði og er félagsmönnum til aðstoðar í öllu sem viðkemur atvinnurekstri þeirra.
Meistarafélag Norðurlands hefur komið sér upp sinni eigin gæðahandbók. Félagið og aðildarfyrirtæki þess eru aðilar að Samtökum iðnaðarins sem eru heildarsamtök iðnaðarins í landinu með rúmlega 1300 fyrirtæki innan sinna raða, bæði stór og smá, þar á meðal öll helstu bygginga- og verktakafyrirtæki landsins.
Vefsíða félagsins: www.mbn.is
Tengiliður SI: Þorgils Helgason, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, thorgils@si.is.
