Samtök fyrirtækja í líf- og heilbrigðistækni voru stofnuð árið 2019.
Samtök fyrirtækja í líf- og heilbrigðistækni, SLH, voru stofnuð árið 2019 við samruna Samtaka íslenskra líftæknifyrirtækja, SÍL, sem voru stofnuð í maí 2004 og Samtaka heilbrigðisiðnaðarins, SHI, sem voru stofnuð í janúar 2011. Samtök líf- og heilbrigðistækifyrirtækja á Íslandi eru hluti af Samtökum iðnaðarins.
· Líf- og heilbrigðistækni mótar umhverfi og líf okkar í nútíð og framtíð. Við mörkum stefnuna til að ná farsælum árangri þar að lútandi
· Við sköpum jákvætt umhverfi sem hvetur til vaxtar og hjálpar líf- og heilbrigðistæknifyrtækjum að tengjast nýjum viðskiptavinum um heim allan
· Við ráðleggjum stjórnvöldum og höfum þannig áhrif á stefnu og reglur
· Við hlúum að tæknimenntun þar sem framtíð okkar byggir á mannauði með menntun á því sviði
· Við leggjum áherslu á eflingu nýsköpunarumhverfisins á Íslandi
Tengiliður hjá SI: Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, erla@si.is.
Fyrirtæki í samtökunum
Dala ehf.
Finnur Pálmi Magnússon
Ármúla 1, Reykjavík
PLAIO ehf.
Jóhann Guðbjargarson
Kristínargötu 1, Reykjavík
Prescriby ehf.
Jóhannes Ingi
Kristínargötu 1, Reykjavík
