Tilgangur IGI er að vera öflugur vettvangur leikjaframleiðenda þar sem öll leikjafyrirtæki landsins koma saman og vinna að því að gera Ísland áhugavert staðarval fyrir leikjaframleiðendur á alþjóðlegum markaði
IGI er vettvangur leikjaframleiðenda þar sem leikjafyrirtæki landsins koma saman og vinna að því að skapa framúrskarandi og samkeppnishæft umhverfi fyrir leikjagerð
IGI er ætlað að vera samráðsvettvangur leikjafyrirtækja á Íslandi sem vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum greinarinnar. Sem dæmi má nefna eflingu nýsköpunarumhverfisins, tengsl við skóla og atvinnulíf, aukið samstarf hagsmunaaðila, þekkingarmiðlun á milli aðildarfyrirtækja auk þess að stuðla að heilbrigðu starfsumhverfi í leikjaiðnaði. IGI veitir stjórnvöldum stuðning þegar kemur að stefnumörkun og reglusetningu með umsögnum og virku samtali.
IGI voru stofnuð 25. september 2009 af tíu leikjafyrirtækjum. Samtökin fara reglulega í stefnumótun, þar sem áhersluverkefni eru skilgreind og þeim fundinn farvegur til frekari uppbyggingar á iðnaðnum.
IGI starfar sem starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins.
Vefsíða IGI: https://igi.is/
Tengiliður hjá SI: Freyr Friðfinnsson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, freyr@si.is.
