Tilgangur SSI er að vinna að hugsmuna- og stefnumálum félagsmanna
Stofnfundur Samtaka skipaiðnaðarins - SSI - fór fram 12. desember, 2014 í Húsi atvinnulífsins. SSI starfar sem starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins. Á stofnfundinum var formaður kjörinn Þröstur Auðunsson hjá Trefjum og varformaður Sverrir Bergsson í Seiglu. Aðrir í stjórn og varastjórn voru kjörnir Ari Elísson hjá Víkingbátum, Regin Grímsson hjá Mótun og Andri Þór Gunnarsson hjá Infuse ehf.
Fyrir stofnfund samtakanna hafði átt sér stað þónokkur stefnumótunarvinna. Í því ferli kom fram lýsing á þeim árangri sem fyrirtæki í greininni vilja ná til ársins 2020 og hvaða forsendur þurfa að vera fyrir hendi til að sá árangur náist
Tengiliður hjá SI: Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, gudnyh@si.is
