Samtök atvinnulífsins, aðildarsamtök ásamt Viðskiptaráði Íslands standa fyrir fjarfundi með Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, þar sem stjórnendum aðildarfélaga gefst kostur á að ræða við ráðherrann um stöðu íslensks atvinnulífs og aðgerðir stjórnvalda. Fundurinn fer fram næstkomandi miðvikudag kl. 11.00.
Um er að ræða klukkustundarfund í gegnum Zoom þar sem félagsmönnum gefst færi á að senda ráðherra spurningar, milliliðalaust, í gegnum spjallþráð forritsins.
Stjórnendur aðildarfélaga fá hlekk á fundinn sendan í tölvupósti.
Fundur með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Fundur með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Rafrænn upplýsingafundur með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra verður haldinn næstkomandi miðvikudag.

Nýsveinar á Akureyri fá afhent sveinsbréf
Nýsveinar fengu sveinsbréf sín afhent við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.

Tuttugu nýsveinar í hársnyrtiiðn fá sveinsbréf

Staðan í byggingariðnaði til umræðu á súpufundi MBS
Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, fór yfir stöðuna í byggingariðnaði á fundi Meistarafélags byggingarmanna á Suðurnesjum.
