Staðan í byggingariðnaði til umræðu á súpufundi MBS

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, fór yfir stöðuna í byggingariðnaði á fundi Meistarafélags byggingarmanna á Suðurnesjum.

MSB

Á súpufundi Meistarafélags byggingarmanna á Suðurnesjum, MBS, sköpuðust góðar umræður um stöðu verkefna, skatta og gjöld en fundurinn fór fram á Hótel Marriott í Reykjanesbæ í gær. Fundarstjóri var Grétar I. Guðlaugsson, formaður MBS.

Á fundinum fór Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, yfir stöðuna í byggingariðnaði. Hann benti á að greinin væri komin í samdrátt. Tekjur hafi dregist saman um 4,3% að raunvirði, atvinnulausum hafi fjölgað um þriðjung á einu ári og virk uppbygging íbúða hafi minnkað um 31% frá því í mars. Á sama tíma auki hið opinbera kostnaðinn með hærri gjöldum sveitarfélaga og lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts.

Í máli Ingólfs kom fram að stjórnvöld ráði miklu um hversu djúpur samdrátturinn verður. Hann sagði Samtök iðnaðarins leggja meðal annars áherslu á lægri verðbólgu og vexti, að endurgreiðsla virðisaukaskatts haldist að minnsta kosti í 35%, lægri og fyrirsjáanlegri gjöld sveitarfélaga, lóðaframboð í takt við eftirspurn og einfaldara regluverk.

MSB
Á myndinni eru, talið frá vinstri hringinn í kringum borðið, Stefán Einarsson, Alexander Ragnarsson, Ari Einarsson, Lúðvík Gunnarsson, Aron Heiðar Steinsson, Guðmunur Ingólfsson, Rúnar Helgason, Grétar I. Guðlaugsson, Róbert J. Guðmundsson, Bjarni Rúnar Einarsson, Áskell Agnarsson og Ingólfur Bender. Myndina tók Kristján D. Sigurbergsson, viðskiptastjóri MBS hjá SI.