Tveir nýsveinar í ljósmyndun fá afhent sveinsbréf

Ljósmyndarafélag

Ljósmyndararnir Regína Rist og Víkingur Magnússon voru í hópi 90 nýsveina í níu iðn- og verkgreinum sem fengu réttindi sín við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica 17. nóvember sl.

Guðmundur Skúli Viðarsson og Rakel Ósk Sigurðardóttir hjá Ljósmyndarafélagi Íslands afhentu sveinsbréfin ásamt blómum og bókagjöf. Nýsveinar í ljósmyndun fá einnig fría aðild að Ljósmyndarafélagi Íslands í eitt ár.

Á vef Ljósmyndarafélags Íslands er hægt að nálgast fleiri myndir.

Mynd/Gunnar Leifur Jónasson.

Ljósmyndarafélag
Á myndinni eru, talið frá vinstri, Guðmundur Viðarsson formaður sveinsprófsnefndar, Regína Rist og Víkingur Magnússon sveinsprófshafar og Rakel Ósk ljósmyndari og fulltrúi sveinsprófsnefndar.
Tveir nýsveinar í ljósmyndun fá afhent sveinsbréf - Samtök Iðnaðarins