Beint í efni

Alþjóðleg hags­muna­gæsla - mikilvæg í breyttum heimi

Alþjóðleg hags­muna­gæsla

Framtíðarsýn

Framtíðarsýn Samtaka iðnaðarins er að tryggja að íslenskur iðnaður hafi sterka rödd á alþjóðavettvangi og búi við samkeppnishæf skilyrði á erlendum mörkuðum. Evrópa er mikilvægasta markaðssvæði íslensks iðnaðar og því þarf Ísland að taka virkan þátt við mótun stefnu og regluverks sem hefur bein áhrif á starfsumhverfi fyrirtækja. SI beita sér fyrir því að tryggja stöðu íslenskra fyrirtækja á innri markaði Evrópu. Það er gert með margvíslegum hætti svo sem með þátttöku í Ráðgjafanefnd EFTA og BusinessEurope ásamt fjölmörgum samstarfsvettvöngum systursamtaka á Norðurlöndunum og Evrópu.  

SI beita sér fyrir því að hagsmunir og sérstaða Íslands fái vægi við mótun evrópsks regluverks og alþjóðlegra skuldbindinga.