Gervigreind - hreyfiafl næstu iðnbyltingar
Samtök iðnaðarins beita sér fyrir því að gervigreind verði nýtt sem hreyfiafl í mótun íslensks iðnaðar til framtíðar.

Gervigreind
Framtíðarsýn
Framtíðarsýn Samtaka iðnaðarins er að gervigreind sé tæki samtímans til að auka framleiðni og skapa ný tækifæri.
SI beita sér fyrir því að íslensk fyrirtæki séu í fremstu röð við að hagnýta gervigreind til verðmætasköpunar.
SI beita sér fyrir því að íslenskt atvinnulíf nýti gervigreind til að gera meira fyrir minna. Sjálfvirknivæðing og snjalllausnir eru lykillinn að því að íslensk fyrirtæki standist alþjóðlega samkeppni.
SI beita sér fyrir því að reglusetning í kringum gervigreind hamli ekki nýsköpun.