Beint í efni

Menntun - öflugur mannauður og fleiri verðmæt störf​

Samtök iðnaðarins beita sér fyrir umbótum í mannauð landsmanna þar sem stefnt er að því að menntakerfið leiði saman færni mannauðsins og þarfir atvinnulífsins á skilvirkan og hagkvæman hátt.


Menntun

Framtíðarsýn

Framtíðarsýn Samtaka iðnaðarins felst í því að mannauður Íslands sé samkeppnishæfur á við það sem best gerist á alþjóðavísu og menntakerfið hafi þróast með þeim hætti að það leiði saman færni mannauðsins og þarfir atvinnulífsins á skilvirkan og hagkvæman hátt. Byggt er á hagnýtingu færnispáa, atvinnustefnu og markvissu þróunarstarfi. Menntakerfið ræktar þekkingu, leikni og hæfni einstaklinga og styður þannig við efnahagslega velmegun og lífsgæði einstaklinga.​

SI beita sér fyrir fjölgun iðnmenntaðra​.

SI beita sér fyrir hugvitsdrifnu hagkerfi​.

SI beita sér fyrir fjölgun menntunarúrræða​.

SI beita sér fyrir almennum umbótum​.