Orka og umhverfi - aukin raforka og græn iðnbylting
Samtök iðnaðarins beita sér fyrir umbótum í orku og umhverfi þar sem stefnt er að því að íslenskur iðnaður sé í fararbroddi í sjálfbærni og umhverfismálum og styðji við markmið þjóðarinnar um kolefnishlutleysi.

Orka og umhverfi
Framtíðarsýn
Framtíðarsýn Samtaka iðnaðarins felst í því að Ísland sé fyrirmynd annarra þjóða í umhverfismálum sem geti skapað íslenskum iðnaði samkeppnisforskot. Leiðin að minni losun gróðurhúsalofttegunda er eitt af mikilvægustu verkefnum samtímans. Mikill árangur hefur náðst hér á landi á síðustu áratugum, m.a. með nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa til húshitunar og orkuvinnslu. Þessi aukna áhersla mun m.a. leiða til þróunar í grænni tækni og snjöllum samgöngum.
Metnaðarfull markmið á sviði umhverfis- og loftslagsmála eru áskorun fyrir samfélagið á komandi áratugum en að sama skapi verða til tækifæri til þess að nýta hugvit og sköpunargáfu til að þróa nýja tækni og aðferðir til að gera hluti öðruvísi og betur. Gott samstarf stjórnvalda, atvinnulífs og almennings er forsenda þess að árangur náist.
Orkuskipti.is
Samtök iðnaðarins, Landsvirkjun, Samorka og Efla opnuðu vefinn orkuskipti.is 18. október 2022.