Starfsumhverfi - skilvirkt, hagkvæmt og stöðugt
Samtök iðnaðarins beita sér fyrir umbótum í starfsumhverfi fyrirtækja þar sem stefnt er að því að skilvirkt, hagkvæmt og stöðugt starfsumhverfi laði til landsins fjárfesta og fólk.

Starfsumhverfi
Framtíðarsýn
Framtíðarsýn Samtaka iðnaðarins felst í því að starfsumhverfi fyrirtækja á Íslandi sé skilvirkt, hagkvæmt og stöðugt í samanburði við starfsumhverfi fyrirtækja í löndum samkeppnisaðila. Með starfsskilyrðum og starfsumhverfi er vísað til ytri aðstæðna hvers fyrirtækis sem felast í efnahagslegu, lagalegu, félagslegu og tæknilegu umhverfi í hverju landi. Þessi ytri skilyrði ákvarðast í samspili milli stjórnvalda og atvinnulífs.
SI beita sér fyrir stöðugu starfsumhverfi.
SI beita sér fyrir hagkvæmu starfsumhverfi.
SI beita sér fyrir skilvirku starfsumhverfi.