Viðnámsþróttur - iðnaðurinn bakhjarl samfélagsins
Samtök iðnaðarins beita sér fyrir því að efla hæfni til að standast áföll og aðlagast breytingum. Viðnámsþróttur byggist á samstarfi.

Viðnámsþróttur
Framtíðarsýn
Framtíðarsýn Samtaka iðnaðarins er að samtökin séu virkur þátttakandi í að móta stefnu sem eykur viðbragðsgetu Íslands. Með því að efla samkeppnishæfni og fjölbreytni í íslensku atvinnulífi tryggjum við að efnahagurinn sé ekki bara stór, heldur líka seigur.
SI beitir sér í fæðu- og framleiðsluöryggi.
SI beitir sér í orkuöryggi.
SI beitir sér fyrir því að innviðir þoli áraun.
SI beitir sér fyrir stafrænu og tæknilegu öryggi.