Beint í efni

Af­leið­ing­arnar blasa við í verulegum samdrætti íbúða­upp­bygg­ingar

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir í Morgunblaðinu að nauðsynlegt sé að ríki, sveitarfélög og byggingariðnaðurinn taki höndum saman um aðgerðir til að snúa þróuninni við.

„Þetta er algjörlega fyrirséð þróun sem Samtök iðnaðarins hafa ítrekað varað við. Sveitarfélög hafa mörg á undanförnum árum aukið gjaldtöku verulega, ríkið er að auka skattlagningu á íbúðauppbyggingu og vextir hafa verið mjög háir. Afleiðingarnar blasa nú við í verulegum samdrætti í uppbyggingu íbúða,“ segir Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI í samtali við Morgunblaðið um niðurstöður nýrrar talningar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á íbúðum í byggingu.

Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að íbúðum í byggingu hér á landi hafi fækkað um ellefu prósent frá því í mars og horfur séu á að færri íbúðir verði fullbúnar á næstu tveimur árum en áður hafi verið gert ráð fyrir. Samtök iðnaðarins segi þróunina fyrirséða og kalli eftir viðbrögðum stjórnvalda.

Þá kemur fram í fréttinni að Sigurður segir nauðsynlegt að ríki, sveitarfélög og byggingariðnaðurinn taki höndum saman um aðgerðir til að snúa þróuninni við. Hann segir þó jákvæð teikn á lofti hjá nýkjörnum sveitarstjórnum víða um land sem hafi lækkað gjöld. „En jafnframt þarf breyttar áherslur í skipulagsmálum og þjóðarsátt milli aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera um umbætur sem skapa stöðugleika til lengri tíma.“

Sigurður segir jafnframt í Morgunblaðinu að mikilvægt sé að stjórnvöld falli frá fyrirhugaðri lækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á byggingarstað, úr 35 prósentum í 20 prósent. „Aðeins þannig tryggjum við nægjanlega íbúðauppbyggingu og náum verðbólgu og vöxtum niður.“

Morgunblaðið, 23. september 2026.