Beint í efni

At­vinnu­leysi í bygg­ing­ar­iðn­aði langt umfram það sem sést í hefð­bund­inni árs­tíða­sveiflu

Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um aukið atvinnuleysi í byggingariðnaði.

Ingólfur Bender

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, segir í frétt Morgunblaðsins um aukið atvinnuleysi að samdráttur í byggingariðnaði birtist helst í smíði íbúða og komi m.a. fram í minni veltu, minni innflutningi byggingarefna og auknu atvinnuleysi í greininni. Hann segir atvinnuleysið „langt umfram það sem sjáist í hefðbundinni árstíðasveiflu sem skýrist af versnandi efnahagsumhverfi greinarinnar“. Fyrir síðustu áramót hafi verið teikn á lofti um minnkandi umsvif. „Síðan hefur það verið að raungerast á þessu ári og grafa sig dýpra.“

Í fréttinni kemur fram að Samtök iðnaðarins áætli að í september hafi verið rúmlega 1.140 án vinnu í byggingargeiranum sem sé 36% aukning innan þess hóps milli ára. Samdrátturinn sé ekki að fullu kominn fram í atvinnuleysinu sem muni að óbreyttu aukast í vetur. Ingólfur segir að til að bæta gráu ofan á svart hyggist ríkisstjórnin hækka skatta á uppbyggingu og viðhald íbúða. „Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar kemur fram að hún hyggst lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað úr 35% niður í 20%. Þessi skattahækkun mun draga úr uppbyggingu, auka niðursveifluna í greininni, auka við atvinnuleysið, ýta undir svarta vinnu og getu almennings til að viðhalda fasteignum sínum. Samtök iðnaðarins mótmæla þessari boðuðu skattahækkun harðlega.“

Morgunblaðið / mbl.is, 17. október 2026.

Morgunblaðið