Beint í efni

Breytingar á ýmsum sköttum og gjöldum

Samtök iðnaðarins hafa tekið saman meðfylgjandi yfirlit yfir helstu breytingar á sköttum og gjöldum sem tóku gildi nú um áramótin og hafa áhrif á félagsmenn.


Þétt setið á ráðstefnu Norræna fjárfestingabankans í New York

Samtök iðnaðarins hafa tekið saman meðfylgjandi yfirlit yfir helstu breytingar á sköttum og gjöldum sem tóku gildi nú um áramótin og hafa áhrif á félagsmenn. Ekki er um endanlega upptalningu að ræða og er þeim sem vilja kynna sér málið frekar bent á vefi alþingis og ríkisskattstjóra.

Virðisaukaskattur. Efra skattþrep skattsins lækkar úr 25,5% í 24% en lægra þrepið hækkar úr 7% í 11%.

Endurgreiðsla vsk. af vinnu á byggingastað vegna nýbygginga, viðhalds og endurbóta. Endurgreiðslan lækkar úr 100% í 60% og á nú aðeins íbúðarhúsnæði ekki frístundahús eða húsnæði í eigu sveitafélaga. Vsk. vegna vinnu hönnuða og eftirlitsaðila verður ekki endurgreiddur eftir 1. janúar. Áréttað skal að hægt verður allt árið 2015 að sækja um endurgreiðslur á vsk. skv. eldri reglum ef verkið hefur verið unnið fyrir síðast liðin áramót og reikningur dagsettur 2014.

Vörugjöld. Um áramótin féllu niður öll vörugjöld nema á áfengi, tóbaki, eldsneyti og bifreiðum. 15% vörugjald voru lagt á margar byggingavörur en þó ekki allar. T.d. voru vörugjöld á gipsplötum en ekki spónaplötum. Hreinlætis og blöndunartæki, gólfefni voru með vörugjaldi.

Tryggingagjald lækkar úr 7,59% í 7,49%

Persónuafsláttur verður kr. 50.902 á mánuði. Skattleysismörk eru því kr. 135.384. Skattleysismörk með lífeyrisjóði verða 142.153 á mánuði.

Tekjuskattur einstaklinga verður sem hér segir:

  1. Þrep: laun kr. 0-309.140 staðgreiðsluprósenta 37.30%
  2. Þrep: laun kr. 309.141 – 836.403 staðgreiðsluprósenta 39.74%
  3. Þrep: laun yfir kr. 836.404 staðgreiðsluprósenta 46,24%

Reiknað endurgjald. Maður sem vinnur við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfssemi, eða telst vera með ráðandi stöðu í atvinnurekstri skal reikna sér ákveðið lágmarks endurgjald sem er mismunandi eftir starfsstéttum. Sem dæmi má nefna að iðnaðarmenn skulu vera á bilinu 262.000-433.000.

Tekjuskattur fyrirtækja. Félög með takmarkaða ábyrgð og samvinnufélög greiða 20% en aðrir lögaðilar 36%.

Fjármagnstekjuskattur. Skatturinn er 20% og undir hann fellur einnig söluhagnaður af sölu hlutabréfa.

Útvarpsgjald verður 17.800