Beint í efni

Góð mæting á kosn­inga­fund MIH

Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði stóð fyrir kosningafundi í Haukahúsinu.

Góð mæting á kosningafund MIH

Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði hélt súpufund fyrir félagsmenn í Haukahúsinu föstudaginn 8. maí þar sem sveitarstjórnarkosningarnar voru í brennidepli. Oddvitar allra framboða í Hafnarfirði boðuðu komu sína og áttu gott spjall við félagsmenn um málefni bæjarins og framtíðarsýn framboðanna.

Fundargestir nutu þess að eiga beint samtal við oddvitana og skapaðist lífleg og málefnaleg umræða. Fundurinn var vel sóttur og mæltist mjög vel fyrir meðal félagsmanna.

Góð mæting á kosningafund MIH - Samtök Iðnaðarins