Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins og stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, hefur tekið við formennsku stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða í stað Þorbjörns Guðmundssonar sem óskaði eftir því að hætta í stjórn samtakanna á ársfundi þeirra. Guðrún er þar með fyrsta konan í formannsstóli Landssamtaka lífeyrissjóða frá því þau voru stofnuð 1998.
Guðrún nýr formaður LL
Guðrún nýr formaður LL
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI og stjórnarformaður LIVE, hefur tekið við formennsku stjórnar LL.



