Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, segir í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að atvinnuleysi í byggingariðnaði og mannvirkjagerð sé að aukast. Hann segir að það heyrist frá félagsmönnum SI og það sjáist mjög vel í tölunum líka. „Fjöldi íbúða í virkri uppbyggingu eins og það er nú talið af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur farið fækkandi. Við höfum séð fjölda byggingarleyfa nýrra íbúða sem voru ekki nema 56 á fyrri hluta þessa árs samanborið við 77 á sama tíma í fyrra. Við vorum að sjá þetta í kringum 100-120 á árshelmingi fyrir stuttu síðan þannig að þetta er hálfdrættingur á við það sem var.“
Ingólfur segir að þessi grein hafi langa sögu um miklar sveiflur og greinin sveiflist sögulega séð meir heldur en hagkerfið allt. „Þannig að aðilar í greininni eru því miður bara vanir því að takast á við svona niðursveiflur en vilja öðru fremur skapa einhvern stöðugleika þannig að hér sé þá byggt í takti við þarfir til lengri tíma fyrir íbúðir, innviði og atvinnuhúsnæði.“ Hann segir að því miður séu stjórnvöld að bregðast við þessu ástandi með því að hækka skattbyrði á greinina í í nýframkomnu fjárlagafrumvarpi þar sem kemur fram að taka eigi niður endurgreiðslu fyrir vinnu manna á verkstað úr 35% í 20%. „Sem er aukaskattbyrði fyrir greinina upp á 3,6 milljarða króna eða 1,1 til 1,3 milljón á 100 fermetra íbúð og þetta náttúrulega bara skapar enn meiri samdrátt ofan í þann samdrátt sem við sjáum.“ Hann segir að kostnaðurinn mun hækka og vilji til þess að byggja minnkar. „Þetta bara keyrir þetta enn meira niður þannig að atvinnuleysi eykst og og við sjáum þetta ýta undir svarta atvinnustarfsemi að sjálfsögðu og þá getu almennings til þess að halda við húsnæði sínu.“
Ingólfur segir að klárlega sé þetta ekki rétt meðal í núverandi aðstæðum því að greinin sé að takast á við ekki bara niðursveifluna heldur líka sé hún með mikið af íbúðum óseldum sem tikki á stýrivöxtum sem séu 8%. Hann segir að margir verktakar og undirverktakar komi að því að byggja íbúðarhúsnæði, innviði og atvinnuhúsnæði og þegar dragist saman finni menn fyrir því á öllum þrepum í ferlinu.
Þegar Ingólfur er spurður hvað hann myndi gera ef hann væri fjármálaráðherra í dag svarar hann: „Ég myndi taka til baka þessa hugmynd um að hækka skattbyrði greinarinnar. Ég myndi lækka hana frekar til þess að koma í veg fyrir að við sjáum einhvern meiri samdrátt þarna og við séum þá að hlaða í annað ójafnvægi eftir ekki mjög langan tíma.“
Á vef Vísis er hægt að hlusta á viðtalið við Ingólf í heild sinni.
Vísir, 10. september 2026.



