Beint í efni

Heims­mark­miða­sjóð­ur at­vinnu­lífs­ins opinn fyrir umsóknir

Utanríkisráðuneytið auglýsir Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífsins en umsóknarfrestur er til 3. febrúar, 3. maí og 3. október á þessu ári.

Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífsins opinn fyrir umsóknir

Utanríkisráðuneytið hefur auglýst að Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífsins um þróunarsamvinnu sé opinn fyrir umsóknir. Umsóknarfrestir eru 3. febrúar, 3. maí og 3. október á þessu ári. Hægt er að senda fyrirspurnir um sjóðinn á netfangið atvinnulifssjodur@utn.is. Umsóknir þurfa að berast í gegnum þennan hlekk: www.island.is/atvinnulifssjodur.

Með þátttöku leggja fyrirtæki af mörkum við að draga úr fátækt og stuðla að sjálfbærni með eflingu atvinnu- og viðskiptalífs í þróunarlöndunum. Um leið auka þau samkeppnishæfni sína á framtíðarmörkuðum. Sérstaklega er hvatt til þess að verkefni stuðli að jafnrétti kynjanna og að jákvæðum umhverfis- og loftslagsáhrifum.

211207-Utanrikisraduneytid-Auglysingaefni-255x200-V2-002-

Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífsins opinn fyrir umsóknir - Samtök Iðnaðarins