Beint í efni

Í okkar höndum að tryggja að EES-samn­ing­ur­inn reynist áfram vel

„Alþjóðaumhverfið er að breytast hratt og því eðlilegt að velta upp stöðu EES-samningsins, þ.e. að rýna styrkleika jafnt sem veikleika samningsins og gera betur. EES-samningurinn hefur reynst Íslandi og Evrópusambandinu vel og það er meðal annars í okkar höndum að tryggja að svo verði áfram,“ segir Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, á FF7 þegar hún er spurð út í nýlegt stöðumat formanns Hægri í Noregi og fyrrum utanríkisráðherra Noregs, sem telur að EES-samningurinn eigi sér ekki langa framtíð.

Lilja Björk segir í frétt FF7 að ekki sé hægt að taka því sem gefnu að umgjörð Evrópusamstarfsins verði óbreytt um ókomna tíð og því þurfi að tryggja virka hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og vera framsækin. „EES-samningurinn er okkar mikilvægasti viðskiptasamningur og hefur reynst burðarás í milliríkjaviðskiptum við Evrópu. Óhindraður aðgangur að innri markaði Evrópu er ein af forsendum þess að íslenskur iðnaður geti vaxið og dafnað. Við eigum mikla hagsmuni undir og því er það forgangsmál að tryggja rekstur EES-samningsins og að hann virki sem skyldi.“ Einnig kemur fram í frétt FF7 að Lilja Björk segi að innleiðingarhallinn sé vandamál „sem við getum og eigum að leysa sjálf.“

FF7, 4. september 2026.