Krefjandi vetur fram undan – félagsfundur MSI um starfsmannamál
Meistaradeild SI í samstarfi við vinnumarkaðssvið SA boðar til lokaðs fundar fyrir félagsmenn þriðjudaginn 22. september kl. 8:30-10 í Húsi atvinnulífsins.
Þrengt hefur að fyrirtækjum í mannvirkjagreinum og margir verktakar horfa fram á krefjandi vetur. Minni verkefnastaða getur kallað á erfiðar ákvarðanir í starfsmannamálum.
Á fundinum verður farið yfir:
- réttindi og skyldur vinnuveitenda og starfsmanna
- breytingar á starfshlutfalli og starfskjörum
- uppsagnir og uppsagnarfrest
- helstu úrræði þegar verkefnastaða versnar.
Sérfræðingar SA fara yfir málin og svara spurningum félagsmanna.
Fundurinn er eingöngu fyrir félagsmenn Meistaradeildar SI. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi.
Skráning:
Lokaður félagsfundur um kjara- og starfsmannamál fyrirtækja í byggingariðnaði – Fylltu út eyðublað