Í viðskiptahagkerfinu, þ.e. hagkerfinu án hins opinbera, mældist einungis 1,2% fjölgun launþega í ágúst sem er minnsti vöxtur í fjölda launþega sem mælst hefur síðan í apríl 2011 eða síðan hagkerfið byrjaði að taka við sér í þeirri efnahagsuppsveiflu sem nú virðist vera að líða undir lok. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri greiningu SI sem ber heitið Dregur úr hagvexti. Þar segir jafnframt að eftir efnahagsuppsveiflu síðustu ára séu merki um hægari hagvöxt og þau séu ekki síst sýnileg á vinnumarkaði þar sem dregið hefur úr fjölgun launþega og atvinnulausum hefur fjölgað. Mældist fjölgun launþega þannig 2,1% í ágúst síðastliðnum samanborið við 4,4% á sama tíma í fyrra og 5,0% í ágúst 2016.
Merki um minni vöxt á vinnumarkaði
Í nýrri greiningu SI kemur fram að skýr merki séu um minni vöxt á vinnumarkaði.

Tengt efni
Gagnaver á Íslandi renna styrkari stoðum undir útflutningstekjur hagkerfisins
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um mikinn vöxt útflutningstekna gagnavera á Íslandi.

Gagnaver á Íslandi eru ört vaxandi útflutningsgrein
Í nýrri greiningu SI kemur fram að gagnaver séu ein af hraðvaxtargreinum íslensks útflutnings. Horfur eru á að útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi verði um 72 milljarðar króna í ár samanborið við 41,4 milljarða króna í fyrra.

Heimsókn í ný húsakynni Blikksmiðsins
Fulltrúi SI heimsótti ný húsakynni Blikksmiðsins að Bæjarflöt 2.
