Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og Háskóli Íslands óska eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2018 sem verða afhent þann 19. nóvember næstkomandi. Fyrirtæki geta sent inn tilnefningar til 13. nóvember kl. 17.00. Hvatningarverðlaunum jafnréttismála er ætlað að vekja jákvæða athygli á fyrirtækjum sem hafa stuðlað að jafnrétti á markvissan hátt innan sinna fyrirtækja og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama. Tilnefningar er hægt að senda á netfangið verdlaun@sa.is. Á vef SA er hægt að nálgast frekari upplýsingar um verðlaunin og hvaða skilyrði þarf að uppfylla.
Óskað eftir tilnefningum fyrir Hvatningarverðlaun jafnréttismála
Hægt er að senda tilnefningar fyrir Hvatningarverðlaun jafnréttismála til 13. nóvember næstkomandi.

Tengt efni
Gagnaver á Íslandi renna styrkari stoðum undir útflutningstekjur hagkerfisins
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um mikinn vöxt útflutningstekna gagnavera á Íslandi.

Gagnaver á Íslandi eru ört vaxandi útflutningsgrein
Í nýrri greiningu SI kemur fram að gagnaver séu ein af hraðvaxtargreinum íslensks útflutnings. Horfur eru á að útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi verði um 72 milljarðar króna í ár samanborið við 41,4 milljarða króna í fyrra.

Heimsókn í ný húsakynni Blikksmiðsins
Fulltrúi SI heimsótti ný húsakynni Blikksmiðsins að Bæjarflöt 2.
