Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta Kuðunginn fyrir árið 2018. Kuðungurinn verður afhentur í tengslum við Dag umhverfisins 25. apríl. Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en 22. mars næstkomandi, merktar ,,Kuðungurinn", á netfangið postur@uar.is eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík. Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.
Óskað eftir tilnefningum fyrir Kuðunginn
Óskað er eftir tilnefningum fyrir Kuðunginn sem verður afhentur 25. apríl næstkomandi.

Tengt efni
Elkem, Icelandair og Ístak eru tilnefnd sem Umhverfisfyrirtæki ársins 2026

Gagnaver á Íslandi renna styrkari stoðum undir útflutningstekjur hagkerfisins
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um mikinn vöxt útflutningstekna gagnavera á Íslandi.

Gagnaver á Íslandi eru ört vaxandi útflutningsgrein
Í nýrri greiningu SI kemur fram að gagnaver séu ein af hraðvaxtargreinum íslensks útflutnings. Horfur eru á að útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi verði um 72 milljarðar króna í ár samanborið við 41,4 milljarða króna í fyrra.
