Samtök atvinnulífsins gera athugasemdir við tilhögun fyrirhugaðra verkfalla Eflingar og munu bera lögmæti þeirra undir Félagsdóm en Efling - stéttarfélag hefur kynnt tillögur að vinnustöðvunum á hótelum og hjá hópbifreiðafyrirtækjum sem hefjast skulu 18. mars nk. Samtök atvinnulífsins munu höfða mál fyrir Félagsdómi til að fá úr því skorið hvort boðuð verkföll séu lögleg. Samtök atvinnulífsins efast um lögmæti svokallaðra örverkfalla og vinnutruflana sem Efling hefur skipulagt þar sem markmiðið er að fólk mæti til vinnu en sinni ekki tilteknum starfsskyldum. Dæmi um það er vinnustöðvun sem felur í sér að starfsmaður á hóteli þrífi ekki tiltekin svæði eða hópbifreiðastjóri skoði ekki farmiða farþega.Nánar á vef SA.
SA gerir athugasemdir við tilhögun verkfalla Eflingar
SA gera athugasemdir við tilhögun fyrirhugaðra verkfalla Eflingar og munu bera lögmæti þeirra undir Félagsdóm.

Tengt efni
Gagnaver á Íslandi renna styrkari stoðum undir útflutningstekjur hagkerfisins
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um mikinn vöxt útflutningstekna gagnavera á Íslandi.

Gagnaver á Íslandi eru ört vaxandi útflutningsgrein
Í nýrri greiningu SI kemur fram að gagnaver séu ein af hraðvaxtargreinum íslensks útflutnings. Horfur eru á að útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi verði um 72 milljarðar króna í ár samanborið við 41,4 milljarða króna í fyrra.

Heimsókn í ný húsakynni Blikksmiðsins
Fulltrúi SI heimsótti ný húsakynni Blikksmiðsins að Bæjarflöt 2.
