Beint í efni

Samtök leikja­fram­leið­enda á Gamescom í Köln

Samtök leikjaframleiðenda - IGI, sem starfa innan Samtaka iðnaðarins, Íslandsstofa og sendiráð Íslands í Berlín stóðu fyrir móttöku í Köln 27. ágúst samhliða Gamescom. Þar komu saman fulltrúar íslenskra leikjafyrirtækja, útgefendur, fjárfestar og aðrir samstarfsaðilar úr alþjóðlegum leikjaiðnaði. 

Viðburðurinn bar yfirskriftina Meet the Icelandic Gaming Industry in Cologne og var haldinn undir merkjum „Made in Iceland“. Markmiðið var að kynna íslenska leikjaiðnaðinn sem eina heild, vekja athygli á fyrirtækjunum sem starfa innan greinarinnar og skapa vettvang fyrir ný viðskiptatengsl. 

Auðunn Atlason, sendiherra Íslands í Berlín, bauð gesti velkomna. Halldór Snær Kristjánsson, formaður IGI og framkvæmdastjóri Myrkur Games, fór yfir þróun íslenska leikjaiðnaðarins og þau tækifæri sem felast í auknu samstarfi og sameiginlegri kynningu fyrirtækjanna erlendis. Að ávörpum loknum gafst gestum færi á að kynna sér verkefni íslensku fyrirtækjanna og ræða mögulegt samstarf.  

Meðal íslenskra þátttakenda sem kynntir voru í tengslum við sendinefndina voru 1939 Games, Aldin Dynamics, Aska Studios, Fenris Creations, Deadgroove Games, Myrkur Games, Polar Region Games, Porcelain Fortress og Vitar Games.  

Bettina Adenauer-Bieberstein, kjörræðismaður Íslands í Köln, var meðal gesta móttökunnar. Hún hefur gegnt embætti kjörræðismanns frá árinu 2001 og er barnabarn Konrads Adenauer, fyrsta kanslara Sambandslýðveldisins Þýskalands.  

Útflutningsgrein í vexti 

Sameiginleg viðvera á Gamescom er hluti af markvissri vinnu við að auka sýnileika íslenskra leikjafyrirtækja og byggja upp skýrari ásýnd greinarinnar á alþjóðlegum mörkuðum. 

Samkvæmt samantekt IGI fyrir árið 2025 starfa yfir 30 virk leikjafyrirtæki á Íslandi og um 500 manns vinna við leikjagerð. Tekjur fyrirtækjanna námu um 84,5 milljónum evra, eða um 12,1 milljarði króna. Tekjurnar jukust um 4,7% frá árinu 2024 og nær allar urðu þær til á erlendum mörkuðum.

Skömmu eftir heimkomu sendinefndarinnar var 1939 Games, eitt fyrirtækjanna sem tóku þátt í verkefninu í Köln, valið Vaxtarsproti ársins 2026. Velta félagsins jókst um 260% milli ára, úr 466 milljónum króna í 1.675 milljónir króna. Árangur fyrirtækisins sýnir þau verðmæti og útflutningstekjur sem íslensk hugverk geta skapað þegar þeim tekst að ná fótfestu á alþjóðlegum markaði.  

Samstarf IGI, fyrirtækjanna, Íslandsstofu, sendiráðsins og Samtaka iðnaðarins verður áfram mikilvægur hluti af því að kynna íslenskan leikjaiðnað erlendis og tengja fyrirtækin við útgefendur, fjárfesta og aðra samstarfsaðila. 

Myndir/Paul Hense

Auðunn Atlason, sendiherra Íslands í Berlín, Halldór Snær Kristjánsson, formaður IGI og framkvæmdastjóri Myrkur Games, Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, viðskiptastjóri hugvits og tækni hjá Íslandsstofu, og Freyr Friðfinnsson, viðskiptastjóri IGI hjá Samtökum iðnaðarins.