Beint í efni

Spretthópur um tækifæri og áskoranir í ut­an­rík­is­við­skipt­um

Gert er ráð fyrir að spretthópur um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum skili af sér aðgerðaáætlun með markmiðum snemma árs 2027.

Spretthópur

Spretthópur um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum kom saman til fundar í fyrsta sinn í utanríkisráðuneytinu við Austurhöfn í gær. Utanríkisráðherra skipaði hópinn nýverið en honum er ætlað að greina stöðu Íslands í alþjóðaviðskiptakerfinu og þá þróun sem hefur orðið innan þess á undanförnum misserum. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Þar kemur einnig fram að hópurinn sé skipaður forystufólki úr atvinnulífinu, þeim Bjarna Benediktssyni, sem jafnframt er formaður hópsins, Hrund Rudolfsdóttur og Sigurði Hannessyni. Þá eigi sæti í hópnum fulltrúar utanríkisráðuneytisins, Högni S. Kristjánsson, sendiherra á viðskiptaskrifstofu, og Rún Ingvarsdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Hópurinn hafi einnig sér til halds og trausts teymi frá viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og Íslandsstofu.

Gert er ráð fyrir að hópurinn skili af sér aðgerðaáætlun með markmiðum snemma árs 2027.

Spretthópur um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum - Samtök Iðnaðarins