Tuttugu nýsveinar í hársnyrtiiðn fengu sveinsbréf sín afhent við hátíðlega athöfn Iðunnar fræðsluseturs á Hilton Reykjavík Nordica fyrir skömmu. Stefanía Guðrún Gunnlaugsdóttir, sem starfar á OneStudio, náði framúrskarandi árangri á sveinsprófinu og var með hæstu einkunnina í hópnum.
Félag hársnyrtimeistara og -sveina í Reykjavík sem er aðildarfélag SI óskar nýsveinunum til hamingju með áfangann og býður þá velkomna í félagið.





