Beint í efni

Herferðir

Samtök iðnaðarins nýta alla helstu fjölmiðla og samfélagsmiðla til að koma skilaboðum á framfæri um einstaka viðburði eða annað sem vekja þarf athygli á.

Herferðir

Jólaauglýsing SI - Piparkökuhúsið

Samtök iðnaðarins hafa birt nýja sjónvarpsauglýsingu þar sem landsmönnum er óskað gleðilegra jóla og kraftmikillar uppbyggingar á nýju ári. 

Auglýsinging var gerð af Aton fyrir SI. Leikstjóri er Atli Bollason. Tökumaður er Edda Kristín Óttarsdóttir. Leikarar eru Ólafur Ágeirsson, Birna Rún Eiríksdóttir og Aníta Apríl. Handritsgerð og framkvæmd: Aton.

Hér er hægt að nálgast auglýsinguna

https://vimeo.com/1143978669?fl=pl&fe=sh

Hugmyndalandið

Með hugmyndum, góðum ákvörðunum, framkvæmdum og samtakamætti hefur Ísland náð miklum framförum á skömmum tíma. Með elju og staðfestu höfum við fjárfest í innviðum, samgöngum, fjarskiptum, húsnæði, nýsköpun og menntun og með því skapað frjóan jarðveg fyrir fjölbreytt atvinnulíf og velsæld.

Samtakamátturinn og viljinn til uppbyggingar færðu okkur stóra sigra. Nú þarf að ráðast í nýja sókn á ýmsum sviðum. Það er nýtt í íslensku samfélagi að raforka sé ekki næg til nauðsynlegra nota. Innviðir landsins þjóna sums staðar ekki hlutverki sínu, og nú, eins og of oft áður, stöndum við frammi fyrir alvarlegum lóða- og húsnæðisskorti. Efla þarf framleiðslugetu hagkerfisins og mynda þannig grunn fyrir aukna verðmætasköpun og stöðugleika.

Nú þarf að líta til framtíðar og sækja tækifærin. Koma öflugum hugmyndum í framkvæmd og halda áfram á braut framfara. Þannig verður Ísland Hugmyndalandið.

Hugvitið er okkar allra dýrmætasta auðlind, en til þess að það verði okkur til góðs verðum við að virkja hugmyndir í íslensku samfélagi og atvinnulífi.

Íslenskur iðnaður stendur nú undir um fimmtungi verðmætasköpunar hagkerfisins, hlutdeild sem hefur aukist á undanförnum árum. Í iðnaði starfa um 51 þúsund manns, sem samsvarar 22% af heildarfjölda starfandi á íslenskum vinnumarkaði. Á síðasta ári skilaði iðnaðurinn 698 milljörðum króna í útflutningstekjur, sem nemur 38% af heildarútflutningstekjum þjóðarbúsins. Iðnaður er stærstur allra útflutningsgreina. Skattspor iðnaðarins, þ.e. framlag iðnaðarins til samfélagsins í formi skattgreiðslna, nam 213 milljörðum króna árið 2022 og er það stærst allra útflutningsgreina.

Hér er PDF með 30 umbótatillögum Samtaka iðnaðarins sem stuðla að aukinni samkeppnishæfni.

Kosn­inga­fund­ur SI

Alþingiskosningar 2024

Alþingiskosningar 2024 fóru fram 30. nóvember 2024.

Kosningafundur SI fór fram fyrir fullum sal í Silfurbergi í Hörpu með þátttöku formanna og fulltrúa átta flokka 5. nóvember 2024. Yfirskrift fundarins var Hugmyndalandið. Með fundinum vilja samtökin leggja sitt af mörkum til uppbyggilegrar umræðu í aðdraganda alþingiskosninga um það hvernig efla megi atvinnulíf og verðmætasköpun á Íslandi og vekja athygli á þeim málefnum sem brýnust eru nú og til framtíðar.

Þátttakendur í dagskrá voru eftirtaldir:

  • Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
  • Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI
  • Ragnar Þór Ingólfsson, Flokkur fólksins
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokkurinn
  • Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Píratar
  • Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Kristrún Frostadóttir, Samfylkingin
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Viðreisn
  • Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Miðflokkurinn
  • Svandís Svavarsdóttir, Vinstri græn

Myndir

Á Facebook SI er hægt að nálgast myndir frá fundinum.

Herferðir - Samtök Iðnaðarins