Beint í efni

Vaxt­ar­sprot­inn

Vaxtarsprotinn er afhentur þeim sprotafyrirtækjum sem sýna mestan vöxt í söluveltu milli síðasta árs og ársins á undan. Fyrsta viðurkenningin var afhent 2007.

Vaxtarsprotinn er afhentur þeim sprotafyrirtækjum sem sýna mestan vöxt í söluveltu milli síðasta árs og ársins á undan.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins (SI), Háskólans í Reykjavík (HR) og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands (Rannís). Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.

Skilyrði fyrir tilnefningu er að frumkvöðull sé til staðar í fyrirtækinu og fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi, fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar. Einnig er veitt viðurkenning til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna.

Verðlaunagripur Vaxtasprotans er íslensk hönnun og smíðaður hjá Héðni hf.

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Vaxtarsprotann 2026.

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Vaxtarsprotann 2025.

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Vaxtarsprotann 2024.

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Vaxtarsprotann 2023. 

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Vaxtarsprotann 2022.

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Vaxtarsprotann 2021. 

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Vaxtarsprotann 2020. 

Eftirtalin fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann frá árinu 2007: 

  • 1939 Games (2026)
  • Aldin Dynamics (2025)
  • Abler (2024)
  • Hopp (2023)
  • Controlant (2022)
  • 1939 Games (2021)
  • Kerecis (2020)
  • Carbon Recycling International (2019)
  • Kaptio (2018)
  • Kerecis (2017)
  • Eimverk (2016)
  • Kvikna (2015)
  • DataMarket (2014)
  • Meniga (2013)Valka (2012)
  • Handpoint (2011)
  • Nox Medical (2010)
  • Mentor (2009)
  • Mentor (2008)
  • Marorka (2007)