Beint í efni

Þjónusta

Aðild að SI borgar sig. Fyrirtæki geta ýmist verið beinir aðilar að Samtökum iðnaðarins eða aðilar í gegnum starfsgreinahópa og aðildarfélög samtakanna. Undir hatti SI starfa hátt í 40 starfsgreinahópar og aðildarfélög.

Þjónusta

Ávinningur af aðild

Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu samtök atvinnurekenda á Íslandi og mynduð af um 1.700 fyrirtækjum og sjálfstæðum atvinnurekendum sem stunda margvíslega atvinnustarfsemi.

Hér er hægt að sækja um aðild að Samtökum iðnaðarins rafrænt.

Fyrirspurnir um aðildarumsókn er hægt að senda á mottaka@si.is.

Ávinningur af aðild að SI er af ýmsum toga en með aðild að samtökunum er meðal annars hægt að:

  • tekið þátt í málefnavinnu, umræðu og umbótastarfi samtakanna.
  • sótt fundi, fræðslu og Iðnþing SI, sem haldið er árlega.
  • nýtt öflugt tengslanet við hagaðila á Íslandi og erlendis.
  • fengið aðgang að útgáfum, skýrslum, greiningum, fréttabréfi og öðrum gagnlegum upplýsingum.
  • leitað til sérfræðinga SI og nýtt gæðakerfi, vottanir og gæðahandbækur samtakanna.
  • fengið aðgang að fundarsölum í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35.
  • orðið aðili að Ábyrgðarsjóði Meistaradeildar SI og átakinu Íslenskt – gjörið svo vel.

Þinn tengiliður

Hvert aðildarfyrirtæki SI hefur sinn tengilið sem hefur umsjón með einstökum fyrirtækjum og starfsgreinahópum. Hlutverk tengiliðar er meðal annars eftirfarandi:

  • Vinna að framgangi áherslumála einstakra starfsgreinahópa.
  • Gera umsagnir um lagafrumvörp og sinna hagsmunagæslu gagnvart Alþingi, stjórnvöldum, sveitarfélögum og opinberum eftirlitsaðilum.
  • Annast samskipti við opinbera verkkaupa og taka þátt í mótun verklagsreglna.
  • Sjá um fundarboð, fundargerðir, bréfaskriftir og aðra umsýslu starfsgreinahópa.
  • Uppfæra heimasíður einstakra aðildarfélaga þegar við á.
  • Hafa umsjón með samstarfi og tengslum við erlend systurfélög.

Þínar síður

Öll aðildarfyrirtæki SI fá aðgang að eigin síðum í gegnum vef SI þar sem hægt er að nálgast upplýsingar sem tengjast aðild að samtökunum. Þar er jafnframt farvegur fyrir fyrirspurnir og verkbeiðnir.

Aðild að SA

Með aðild að SI verða fyrirtæki einnig aðilar að Samtökum atvinnulífsins, SA, sem annast samskipti við stéttarfélög og gera kjarasamninga fyrir hönd aðildarfyrirtækja sem falið hafa samtökunum umboð til þess. Jafnframt leiðbeina SA aðildarfyrirtækjum um framkvæmd kjarasamninga og önnur vinnumarkaðsmál. Aðildarfyrirtæki SA hafa aðgang að:

• Þjónustu í vinnumarkaðs- og kjaramálum, m.a. aðstoð varðandi túlkun kjarasamninga, launagreiðslur, veikindarétt, orlof, vinnutíma og starfsmenntamál.

• Vinnumarkaðsvef SA sem inniheldur gagnlegar upplýsingar um vinnumarkaðs- og starfsmannamál.