Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður starfshóps um fjármögnun samgöngukerfisins og formaður SA, afhenti Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skýrslu hópsins á kynningarfund sem haldinn var í Húsi atvinnulífsins síðastliðinn föstudag. Á vef Stjórnarráðs Íslands segir að í skýrslunni séu kynntir valkostir við fjármögnun og aðferðafræði við forgangsröðun verkefna. Á þeim grunni hafi starfshópurinn sett saman lista yfir níu flýtiframkvæmdir sem uppfylltu kröfu um umferðaröryggi, umferðarþunga og þjóðhagslegum ábata vegna slíkra flýtiframkvæmda. Þar kemur jafnframt fram að leiðarljós í starfi starfshópsins hafi verið að leita leiða til að flýta uppbyggingu brýnna samgöngumannvirkja í þágu umferðaröryggis. Álag á vegi hafi aukist mikið síðustu ár en á sama tíma hafi framlög til vegagerðar verið óvenjulega lág sem hlutfall af landsframleiðslu. Hér er hægt að nálgast skýrsluna sem ber yfirskriftina Vegaframkvæmdir - leiðir til fjármögnunar. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður starfshóps um fjármögnun samgöngukerfisins og formaður SA.
Skýrsla um fjármögnun samgöngukerfisins
Skýrsla um fjármögnun samgöngukerfisins
Skýrsla starfshóps um fjármögnun samgöngukerfisins hefur verið afhent samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Staðan í byggingariðnaði til umræðu á súpufundi MBS
Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, fór yfir stöðuna í byggingariðnaði á fundi Meistarafélags byggingarmanna á Suðurnesjum.

Skellur í byggingariðnaði gæti orðið enn meiri á næstu mánuðum
Páll Magnússon ræðir við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, í Sprengisandi á Bylgjunni um stöðuna í byggingariðnaði.

Byggt bæði of hratt og of hægt
Rætt er við Jón Sigurðsson, formann Meistarafélags húsasmiða, í Bítinu á Bylgjunni um stöðuna á byggingamarkaði.
