Beint í efni

94 nemendur útskrifaðir hjá Rafmennt

Útskrift Rafmenntar fór fram á Hótel Nordica í desember.

94 nemendur útskrifaðir hjá Rafmennt

Rafmennt útskrifaði meistaranema, nemendur í kvikmyndatækni og afhenti sveinsbréfa í raf- og rafeindavirkjun við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica 19. desember. Alls útskrifuðust 94 nemendur við þetta tilefni.

Sveinsbréf voru afhent til 50 nemenda, þar af voru 49 í rafvirkjun og 1 í rafeindavirkjun. Af þeim sem hlutu sveinsbréf voru 6 konur, sem að mati Rafmenntar markar mikilvægan áfanga í áframhaldandi eflingu fjölbreytni og jafnréttis innan rafiðngreina.

Auk þess útskrifuðust 15 nemendur úr námi í kvikmyndatækni, 29 nemendur úr meistaraskóla rafvirkja og 1 nemandi lauk námi bæði úr meistaraskóla rafvirkja og rafeindavirkja.

Við athöfnina voru einnig veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófum.

Nánar á vef Rafmenntar.




Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka rafverktaka, afhenti Aniku Ýr Jóhannsdóttur viðurkenningu fyrir heildarárangur á sveinsprófi í rafvirkjun. Hún hlaut að gjöf AVO-mæli frá Smith & Norland, veittan af Samtökum rafverktaka.