Beint í efni

Bein útsending frá ráðstefnu um brunavarnir

Ráðstefnan Brunavarnir og öryggi til framtíðar - samhæfð viðbrögð, lagaumgjörð og hlutverk stofnana og atvinnulífs.

Bein útsending frá ráðstefnu um brunavarnir

Fjölmennt var á ráðstefnunni Brunavarnir og öryggi til framtíðar - samhæfð viðbrögð, lagaumgjörð og hlutverk stofnana og atvinnulífs sem fór fram 4. september á Grand Hótel Reykjavík. Á vef SFF er hægt að nálgast upptöku af ráðstefnunni.

Fimm ár eru liðin frá eldsvoðanum á Bræðraborgarstíg þar sem veikleikar í kerfum og regluverki komu skýrt í ljós. Í kjölfarið hófst víðtæk umbótavinna þar sem stofnanir og atvinnulíf tóku höndum saman með það markmið að efla öryggi og bæta eftirlit. Að ráðstefnunni standa Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Samtök iðnaðarins.

Farið verður yfir helstu lærdóma síðustu fimm ára, hvaða breytingar hafa orðið á regluverki, ábyrgðarskiptingu og framtíðaráskoranir í brunavörnum.

Meðal spurninga sem leitast verður við að svara á ráðstefnunni:

  • Hvernig stöndum við á Íslandi þegar kemur að brunvörnum?
  • Hvert er umfang bruna og brunatjóna á Íslandi?
  • Hvað eru tækifæri til að gera betur á þessu sviði hér á landi?

Fyrirlesarar á ráðstefnunni:

  • Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra
  • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og framkvæmdastjóri Almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins - Hvað ef ég hefði…? - Samfélagsleg ábyrgð okkar allra
  • Regína Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri brunavarna- og markaðseftirlitssviðs HMS - Bræðraborgarstígur fimm árum síðar - frá harmleik til umbóta.
  • Birgir Viðarsson, framkvæmdastjóri sölu og ráðgjafar hjá Sjóvá.
  • Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs HMS - Brunabótamat - öryggi almennings vegna fjárhagslegs tjóns af völdum bruna.
  • Guðni I. Pálsson, brunahönnuður hjá COWI, Brunahönnun bygginga - lærdómur, áskoranir og tækifæri
  • Fundarstjóri: Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF

Myndir/HAG

Hægt er að nálgast fleiri myndir frá ráðstefnunni á Facebook SI.

mbl.is, 4. september 2025.

mbl.is, 4. september 2025.

Kastljós RÚV, 4. september 2025.


Bein útsending frá ráðstefnu um brunavarnir - Samtök Iðnaðarins