Beint í efni

Breytt regluverk um steypu opnar fyrir grænar vistvænar lausnir

Með breyttu regluverki um steypu er hægt að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Breytt regluverk um steypu opnar fyrir grænar vistvænar lausnir

Breytt regluverk um steypu var kynnt á fundi innviðaráðuneytisins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar en drög að reglugerð um breytingu á byggingarreglugerð (112/2012) hafa nú verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Umsögn eða ábendingar er hægt að skila inn til og með 16. maí. Með fyrirhuguðum breytingum á steypukafla byggingarreglugerðar er opnað fyrir grænar vistvænar lausnir og margvíslega möguleika til að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. Framsögu á fundinum höfðu Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, og Hermann Jónasson, forstjóri HMS, Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, teymisstjóri nýsköpunar hjá HMS, og Guðbjartur Jón Einarsson, deildarstjóri viðhalds- og aðstöðuþjónustu hjá Framkvæmdasýslu Ríkiseignum. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, tók þátt í umræðum að framsöguerindum loknum ásamt Þorsteini Víglundssyni, forstjóra Hornsteins, Sigríði Ósk Bjarnadóttur, dósent við umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ, Gylfa Gíslasyni, framkvæmdastjóra Jáverks, og Arnhildi Pálmadóttur, arkitekt hjá s. ap arkitektum.

Á fundinum kom fram að mati HMS megi áætla að breytingar á regluverki geti haft þau áhrif að um 20-30% samdráttur verði á losun gróðurhúsalofttegunda vegna notkunar á steypu og um 6% samdráttur á losun vegna byggingariðnaðarins í heild. Með nýjum reglum eru auknir möguleikar fyrir framleiðendur að nota fjölbreyttari efni í steypublöndur en hingað til hefur verið heimilað. Þannig er til dæmis heimiluð notkun endurunninna steinefna. Gerð er krafa um prófunaraðferðir á steinefnum til að takmarka áhættu á alkalískemmdum í steypu en líka til að tryggja endingu hennar og að lágmarka umhverfisáhrif steypunnar á líftíma mannvirkis.

Á vef Stjórnarráðsins er eftirfarandi haft eftir Sigurði Inga Jóhannssyni, innviðaráðherra: „Tillögur að nýju regluverki um steypu í byggingarreglugerð marka tímamót. Með breyttri notkun á steypu og tækninýjungum verður hægt að minnka losun gróðurhúsalofttegunda umtalsvert án þess að slakað verði á kröfum um öryggi og gæði. Einnig koma breytingarnar til móts við hækkandi heimsmarkaðsverð á sementi og stuðla því að lægra byggingarverði.“

Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar: „Núgildandi ákvæði um steypu í byggingarreglugerð eru óumhverfisvæn og var þarft að uppfæra kaflann til samræmis við gildandi Evrópustaðla. Nýjar tillögur koma til móts við fyrirsjáanlegan skort á sementi en ekki síður kröfur markaðarins um grænar lausnir. Tillögurnar hafa verið unnar með þátttöku fremstu sérfræðinga landsins í steypugerð og notkun.“

Nánar á vef HMS.

Hér er hægt að nálgast upptöku frá fundinum:

https://vimeo.com/705403974


Fundur-mai-2022
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, tók þátt í umræðum að erindum loknum.