Heimurinn er breyttur og sama hver tekur við af Trump þá eru kerfin búin að breytast það mikið núna á síðastliðnum 2-3 árum að við getum ekki gengið að öllu sem við gengum að sem vísu síðastliðin 30 ár sem vísu. Þetta segir Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, meðal annars í Silfrinu á RÚV þar sem rætt var um EES-samninginn og stöðu efnahagsmála. Hún segir jafnframt að það hafi komið sér á óvart í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar hversu lítið hafi verið rætt um þennan breytta heim. „Við tölum alltaf um bandalagsþjóðir sem eru vissulega Bandaríkin og hin löndin í Evrópusambandinu. Fyrir mér sem starfa við hagsmunagæslu fyrir stór og fjölmörg fyrirtæki hér á landi og stórar atvinnugreinar þá eru þetta miklu meira hagsmunir heldur en vinabandalög. Við erum kannski komin í heim sem snýst um hagsmuni en ekki vináttu- eða bandalagsþjóðir. Þetta snýst bara um hagsmuni, hagsmuni og hagsmuni.“
Hún segir að það hafi farið lítið fyrir þessari umræðu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. „Við hjá Samtökum iðnaðarins höfum talað fyrir því að styrkja bæði samband okkar til austurs og vesturs. Við höfum komið með ýmsar hugmyndir sem snúa að því að styrkja enn betur okkar tengsl við Bandaríkin. Bandaríkin eru stærsta viðskiptaþjóð Íslands sem eitt land, Evrópusambandið og EES-svæðið er auðvitað stærsta viðskiptasvæðið okkar en það einstaka land sem við eigum mesta viðskiptahagsmuni eru Bandaríkin.“
Á vef RÚV er hægt að nálgast þáttinn.
RÚV, 7. september 2024.




