Beint í efni

Fjölmennir fundir Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar um íbúða­upp­bygg­ingu

Um 200 manns mættu á fundi um stöðu skipulags- og lóðamála Akureyrarbæjar.

Fjölmennir fundir Akureyrarbæjar um íbúðauppbyggingu

Fjölmennt var á tveimur opnum skipulagsfundum sem Akureyrarbæjar hélt í Hofi. Fyrri fundurinn var ætlaður hagaðilum, svo sem byggingaverktökum, fasteignasölum, mannvirkjahönnuðum og öðrum sem koma að uppbyggingu bæjarins og seinni fundurinn var ætlaður íbúum. Á vef Akureyrarbæjar segir að þetta sé í annað sinn sem slíkir fundir séu haldnir og stefnt sé að því að þeir verði fastur liður í starfsemi bæjarins, með því gefist íbúum og hagaðilum kostur á að taka virkan þátt í umræðu um skipulag og ásýnd Akureyrar.

Hér er hægt að nálgast kynningarnar:

Kynning um skipulagsmál fyrir fagaðila

Kynning um skipulagsmál fyrir íbúa

Kynning á framkvæmdum bæjarins fyrir íbúa

Á vef Akureyrarbæjar er hægt að nálgast frekari upplýsingar.

Fjölmennir fundir Akureyrarbæjar um íbúðauppbyggingu - Samtök Iðnaðarins