Beint í efni

Fjölmennt á Degi prents og miðlunar

Fjölmennt var á Degi prents og miðlunar sem IÐAN, Grafía og SI stóðu að í fimmta sinn siðastliðinn föstudag.

Fjölmennt á Degi prents og miðlunar

Dagur prents og miðlunar var haldinn síðastliðinn föstudag í fræðslusetri IÐUNNAR í Vatnagörðum 20. Þetta var í fimmta sinn sem dagurinn er haldinn en það eru IÐAN, Grafía og Samtök iðnaðarins sem standa að deginum. Að venju var boðið upp á fjölbreytta fræðsludagskrá og sýningu birgja. Að lokinni fræðsludagskránni var boðið upp á léttar veitingar og skemmtun og var það Ari Eldjárn sem skemmti gestum.

Á myndinni hér fyrir ofan má sjá Guðrún Hafsteinsdóttur, formann SI, og Hildi Elínu Vignir, framkvæmdastjóra IÐUNNAR, ræða við nokkra nemendur frá Tækniskólanum. Hér fyrir neðan eru myndir frá deginum sem Grímur Kolbeinsson tók.

Fulltrúar þeirra sem standa að Degi prents og miðlunar: Guðrún Birna Jörgensen, viðskiptastjóri á framleiðslusviði SI, Ingi Rafn Ólafsson, sviðsstjóri prent og miðlunar hjá IÐUNNI og Hrönn Magnúsdóttir hjá Grafíu.